Fimmtudaginn 7. maí sl. var haldið skákmót í Hagaskóla sem hefur heitið Vesturbæjarbiskupinn. Þetta er nú haldið í þriðja sinn með því sniði sem það er nú, en einnig var það haldið fyrir einhverjum árum síðan.
Líkt og undanfarin þrjú ár var það Skákakademían sem hélt utan um mótið sjálft en það er Vesturgarður sem heldur mótið en styrktaraðili þess er Melabúðin.
Það voru krakkar víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu sem tóku þátt, en þetta mót er fyrst og fremst ætlað fyrir grunnskólaaldurinn. Þess má geta að einn keppandi var aðeins 5 ára og því enn í leikskóla og stóð sig alveg frábærlega.
Mótinu er skippt í þrjá aldursflokka, 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og svo 8.-10. bekkur.
Þrír efstu í hverjum flokki fyrir sig fá verðlaun, að auki eru svo veitt verðlaun ( farandbikar ) fyrir þann grunnskóla sem sendir flesta þátttakendur og í ár var það Álfhólsskóli úr Kópavogi sem hafði vinninginn að þessu sinni.
Bestu þakkir fá þeir sem að mótinu komu og má kannski helst nefna Stefán Bergsson frá Skákakademíunni, Gunnar Björnsson formaður Skáksambands Íslands, Melabúðin og Hagaskóli fyrir afnot af húsnæði hjá þeim.