Kirsuberjatrén við Tjörnina eru farin að blómstra og vorboðar eins og sílamáfur og kría mættir til leiks. Þá þarf að huga að því að vernda andarungana en bannað er að fóðra fugla við Tjörnina frá 15. maí til 15. ágúst.
Nú styttist í að sjáist í litla andarunga á Tjörninni. Helsti ógnvaldur þeirra sílamáfurinn er þangað kominn og því rétt að minna á að máfurinn sækir í allt fóður, hvort heldur er í formi brauðgjafa eða lítilla andarunga þegar þeir skríða úr hreiðri. Við Tjörnina hafa verið sett upp skilti þar sem minnt er á að bannað er að gefa öndunum brauð frá 15. maí til 15. ágúst.
Kirsuberjatrén sem Vináttufélag Japans og Íslands gáfu og gróðursett voru fyrir fimm árum eru líka farin að blómstra og annar gróður í Hljómskálagarði og við Tjörnina hefur líka tekið mikinn kipp síðustu daga.