Verndaráætlanir um friðlýst svæði í Reykjavík kynntar

Umhverfi

""

Umhverfisstofnun hefur lagt fram til auglýsingar verndar- og stjórnunaráætlanir fyrir 3 friðlýst svæði í Reykjavík, Fossvogsbakka, Háubakka og Laugarás. Reykjavíkurborg og Umhverfisstofnun hafa undanfarið unnið saman að gerð þessara áætlana með það að markmiði að leggja fram stefnu um verndun svæðanna og hvernig viðhalda skuli verndargildi þeirra.

Verndaráætlanirnar eru aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar (www.ust.is) og er hægt að skila inn athugasemdum um þær til 16. apríl 2015 (www.ust.is/hafa-samband).

Fossvogsbakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1999. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda hin svokölluðu Fossvogslög sem eru fágætar jarðmyndanir í jarðsögu Reykjavíkur og landsins alls og lýsa ástandi í lok ísaldar fyrir 11.000 árum. Fossvogslögin eru með þekktari og best varðveittustu jökulbergs- og sjávarsetlögum frá lokum ísaldar á Íslandi. Þau eru minnisvarði um loftslagsbreytingar, landslagsmyndun, sjávarstöðubreytingar og lífríki á grunnsævi. Einstakt er að jarðminjar sem þessar séu jafn aðgengilegar og sýnilegar of Fossvogslögin og hafa þau því mikilvægt rannsóknar og fræðslugildi.

Verndaráætlun um Fossvogsbakka

Háubakkar,  innst í Elliðavogi, voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Markmið friðlýsingarinnar er m.a. að varðveita jarðmyndanir svæðisins í núverandi mynd, en á svæðinu er að finna þykk setlög sem bera merki um áhrif loftslagsbreytinga á ísöld. Í setlögunum er m.a. að finna þykkt surtarbrandslag. Setlögin í Háubökkum tilheyra svokölluðum Elliðavogslögum sem mynduðust að öllum líkindum á löngu tímabili sem hófst fyrir meira en 300 þúsund árum og vörðu í a.m.k. 100 þúsund ár. Vísbendingar eru um að sjávarstaða hafi verið breytileg á þeim tíma er setlögin mynduðust þar sem bæði er um að ræða sjávar- og þurrlendisset.

Verndaráætlun um Háubakka

Laugarás, efst á Laugarásholti, var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982. Ástæða friðlýsingarinnar var vilji til að halda opnu svæði þar sem unnt er að skoða jökulrispað berg, en á svæðinu eru grágrýtisklappir sem eru í senn jökulsorfnar og bera ummerki um hæstu sjávarstöðu við lok ísaldar í Reykjavík.

Verndaráætlun um Laugarás.