Verkefni í Árbæ snúa að náttúruperlum og börnum

Betri hverfi

""

Íbúar í Árbæ leggja til hugmyndir fyrir 89 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Þar á meðal malarstíg við Rauðavatn, Lýsa stíg frá Elliðaám að Streng og Vatnsbrunn í Elliðaárdal við rafstöð

Einnig lýsa leiksvæði barna við Hólmavað, færa leikvöllinn á milli Silakvíslar og Álafkvíslar og setja upp hraðahindrun við þverun Elliðabrautar að Björnslundi.  Þetta eru einungis sex af sautján verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betra hverfi 2015.

Þau sautján verkefni sem kosið verður um eru metin á 89 milljónir króna en til framkvæmda eru rúmlega 27 milljón króna í hverfapotti Árbæjar.

Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast  þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.

Sjá verkefni í Árbæ