Veldu verk í Listasafni Reykjavíkur

Mannlíf Menning og listir

""

Listasafn Reykjavíkur tekur þessa dagana til í listaverkageymslunum í Hafnarhúsi vegna flutninga. Vegna plássleysis er áformað að gefa nokkur verkanna.

Ljóst er að nýjar geymslur safnsins munu ekki rúma öll þau verk sem safnið hýsir. Þess vegna hefur sú ákvörðun verið tekin, í anda samfélagsstefnu safnsins Listin á erindi við alla, að gefa nokkur verkanna til að rýma fyrir nýjum sem þurfa að komast í geymslu. Almenningi er boðið að koma milli klukkan 14 og 15 í dag til að velja sér verk sem safnið hefur ekki lengur pláss fyrir. Listfræðingurinn Auður Þóra Bergsveinsdóttir verður á staðnum til að aðstoða fólk við val á verkum.

Uppfært 2. apríl. Hér var um aprílgabb að ræða og engin listaverk voru gefin. Einn féll fyrir aprílgabbinu og var hann leystur út með glæsilegu veggspjaldi og splunkunýju menningarkorti.