Vel heppnaður starfsdagur SFS í Grafarvogi

Skóli og frístund

""

Vogin, samráðsvettvangur um skóla- og frístundastarf í Grafarvogi og á Kjalarnesi, hélt sameiginlegan starfsdag  9 október. 

Þetta er í fyrsta skipti sem sameiginlegur starfsdagur SFS er haldinn í Grafarvogi, þ.e. starfsfólks leikskóla, grunnskóla , frístundaheimila, frístundaklúbbs og félagsmiðstöðva. Alls starfa um átta hundruð manns á þessum starfsstöðvum og því var margmenni í Rimaskóla þar sem starfsdagurinn var haldinn.

Fjölbreytt dagskrá var í boði, en hún hófst á því að Atli Steinn Árnason, framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbær, setti starfsdaginn en síðan ávarpaði Helgi Grímsson sviðstjóri skóla- og frístundasviðs samkomuna.

Hafsteinn Hrafn Grétarsson, deildarstjóri útivistar í Gufunesbæjar, kynnti þá möguleika sem útivistarsvæðið í Gufunesbæ býður upp á og hvernig má nýta það í útinámi.  Andri Snær Magnason rithöfundur flutti erindi og fjallaði um mikilvægi þess að bjóða börnum og ungmennum upp á frjótt námsumhverfi og tækifæri til að vaxa og dafna hvort heldur í leikskóla, grunnskóla eða í frístundastarfi.

 

Eftir kaffi flutti Haraldur Sigurðsson, framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýrar, erindi um þægindahringinn og mikilvægi þess að útvíkka hann með lærdómi og að fara út á svokallað teygjusvæði. Rúsínan í pylsuendanum var svo leynigesturinn en það var enginn annar en Laddi sem kom fólkinu í sannkallað stuð með bröndurum og skemmtisöng.

 

Starfsdagurinn gekk vel og var ánægjulegt að allt starfsfólk skóla- og frístundasviðs í Grafarvogi og á Kjalarnesi fengi tækifæri til að hittast og fræðast um mikilvæg og sameiginleg fagmál.