Góð þátttaka var á námskeiðsdegi dagforeldra sem haldinn var á Grand hóteli föstudaginn 20 mars.
Námskeiðsadgurinn tókst vel í alla staði og voru dagforeldrar ánægðir með fróðleg erindi sem boðið var upp á. Þórólfur Guðnason yfirlækni fjallaði um forvarnir við sýkingum hjá börnum og Lone Jensen verkefnastjóri hjá heilsugæaslu höfuðborgarsvæðisins fjallaði um samskipti við börn í krefjandi aðstæðum. Þá sagði Eyþór Eðvaldsson stjórnendaþjálfi frá margvíslegum samskiptastílum og gaf góð ráð.
Dagforeldrar í Reykjavík hittast árlega á sameiginlegum námskeiðsdegi þar sem leitast er við að styrkja tengsl þeirra og byggja upp faglega þekkingu.