Veður að ganga niður

Skóli og frístund

Skólastúlkur í snjónum við Fellaskóla
Ekki talin þörf á að foreldrar sæki börn í skóla eða frístundarstarf vegna veðursins. Veður er að ganga niður og eru aðstæður að verða eðlilegar samkvæmt tilkynningu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.  
 
 
Fyrr í dag þegar veður versnaði voru foreldrar beðnir um að fylgjast vel með veðurspám og tilkynningum í fjölmiðlum.
 
Lögð var áhersla á það í tilkynningu frá lögreglu og Slökkivliði höfuðborgarsvæðisins að börn sem komin væru í skóla dveldu þar fram að lokum skóla- og frístundastarfs eða þar til að veðrið gengi niður sem nú hefur gerst. Aðstæður teljast nú eðlilegar miðað við árstíð, mikil snjókoma og vindur farinn að lægja.