Hvernig viljum við lifa og búa? Hvaða verkfæri höfum við?
Málþing um horfur í íbúða- og byggðaþróun verður haldið í Hafnarhúsinu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi 18. mars.
Skýr vatnaskil urðu í húsnæðis- og byggðaþróun við hrunið og mikilvægt að vinna rétt úr þeim aðstæðum sem þar mótuðust. Á málþinginu verður því velt upp hvort og hvernig við þurfum að huga að breytingum í húsnæðis- og borgarmálum með hliðsjón af nýjum veruleika í samfélaginu í kjölfar hrunsins, áhrifum nýs aðalskipulags í Reykjavík á borgargæðin og í því samhengi hvernig verkefni á borð við Hæga breytileg átt geta átt þátt í að vísa veginn.
Reynt verður að meta áhrif og árangur hins þverfaglega samstarfs sem ástundað var í verkefninu til þróunar á þeim verkfærum sem nauðsynleg eru til að bætta manngert borgarumhverfi í mótun.
Rætt verður um gæðamat við þróun og útfærslu nýrra reita innan þéttbýlis, einkum með hliðsjón af nýjum viðhorfum til íbúðagerða og nýrra sjónarmiða við mótum útirýma. Reynt verður að leggja mat á mikilvægi þess að fjármögnunaraðilar beiti meira gæðasjónarmiðum við fyrirgreiðslu fjármagns en hingað til og að reynt verði að breyta því viðhorfi að horfa eingöngu til arðsemi fjármunanna, á kostnað umhverfisgæða.
Framsöguerindi: Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur, Steinþór Kári Kárason arkitekt og prófessor við Listaháskóla Íslands, Anna María Bogadóttir arkitekt og stjórnarformaður Hæg breytileg átt.
Pallborð: Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Stjórnandi málþings: Jóhannes Þórðarson, arkitekt.
Hafnarhús, mið. 18. mars kl. 20.00.