Tilkynnt verður um val á Íþróttafólki Reykjavíkur föstudaginn 18.desember. Í tilefni dagsins býður Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson til móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Frá árinu 1979 hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur staðið að vali á Íþróttafólki Reykjavíkur og er þetta því í 37.sinn sem hátíðin fer fram. Í ár verður í þriðja sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem að íþróttalið ársins verður valið.
Ellefu lið frá níu félögum verða verðlaunuð fyrir árangurinn á árinu 2015 og síðan eitt þeirra útnefnt Íþróttalið Reykjavíkur 2015. Tólf einstaklingar verða einnig verðlaunaðir, einn útnefndur Íþróttakarl Reykjavíkur og ein Íþróttakona Reykjavíkur 2015.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, og formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, afhenda íþróttafólkinu viðurkenningar.
Lista yfir þau sem hafa verið útnefnd Íþróttamenn Reykjavíkur frá 1979-2014 má finna hér á heimasíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur