Börn af þremur leikskólum í Breiðholti heimsóttu borgarstjóra á ferð sinni um miðbæinn og fengu sér hressingu í Ráðhúsinu.
Elstu börnin í leikskólunum Arnarborg, Bakkaborg og Fálkaborg heimsóttu Ráðhúsið í dag, en þau hafa á undanförnum vikum verið í útiskóla og ferðast um alla borgina. Krakkarnir eru að útskrifast úr leikskólanum og hafa útvíkkað sjóndeildarhringinn með ýmsum heimsóknum á söfn og á stofnanir áður en þau fara í sumarleyfi en í haust halda þau áfram skólagöngunni í grunnskólanum.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók á móti þessum glaðlega hópi í Ráðhúsinu í dag og sungu börnin fyrir hann og sögðu honum sögur úr leikskólastarfinu. Að því loknu héldu þau áfram á menningarferð sinni um borgina.