Sigríður Arndís Jóhannsdóttir fékk Grasrótarverðlaun Knattspyrnusambands Íslands, en ársþing þess var haldið um helgina. Sigríður, sem starfar sem verkefnastjóri hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, hefur staðið fyrir fótboltaæfingum fyrir utangarðsmenn.
Æfingarnar hafa farið fram einu sinni í viku á Klambratúni og hafa alls um 20 utangarðsmenn mætt á þessar æfingar, eða sex til átta manns hverju sinni. Þeir hafa sýnt mikla leikgleði og verið knáir með knöttinn.
Upphaf þessara fótboltaæfinga var að Sigríður Arndís fór ásamt Borgarvörðum og kallaði saman áhugasama utangarðsmenn á flötina á Klambratúni til að spila fótbolta. Þeir sýndu þessu strax mikinn áhuga og myndaðist góð stemning í boltanum síðasta sumar.
KSÍ þótti Sigríður og félagar verðugir handhafar Grasrótarverðlauna KSÍ að þessu sinni, enda frábært framtak. Sigríður hefur fullan hug á því að halda áfram með þetta verkefni og taka upp æfingar aftur næsta sumar.