Utangarðsmenn fá ráðgjöf

Velferð Mannréttindi

""

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar mun veita utangarðsmönnum ráðgjöf í Gistiskýlinu við Lindargötu alla þriðjudagsmorgna frá kl. 8.30 - 10.00.

Allir geta nýtt sér ráðgjöfina en sérstaklega er ætlunin að ná til pólskumælandi manna.  Tveir pólskumælandi ráðgjafar munu sjá um ráðgjöfina í Gistiskýlinu.

Markmiðið er að ná til þessara manna og benda þeim á þjónustu og lausnir sem þeim stendur til boða. Þeir verða tengdir við ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum borgarinnar, sem leita munu varanlegra úrræða fyrir þá, ekki síst í húsnæðismálum.

Verkefnið er samstarfsverkefni mannréttindaskrifstofu og velferðarsviðs borgarinnar.