Úrslit í ratleiknum “Leitin að jólavættunum“

Menning og listir

""
Þrír heppnir vinningshafar voru dregnir út í ratleiknum "Leitin að jólavættunum".
Frá árinu 2011 hafa jólavættirnar verið á ferli í miðborg Reykjavíkur á aðventunni. Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og fleiri skemmtilegar og skringilegar furðuverur komu sér fyrir á húsveggjum miðbæjarins í byrjun desember.

Ratleikurinn “Leitin að jólavættunum“ er ætlaður allri fjölskyldunni og felst í því að finna vættirnar og svara spurningum um þær sem eru á upplýsingaskiltum við hverja vætt. Þrátt fyrir að leiknum sé nú lokið verða vættirnar áfram sýnilegar til 4.janúar og því um að gera að finna þær og þeim kynnast.

 
Nú hefur verið dregið úr fjölda þátttökuseðla og eru vinningshafarnir komnir í ljós.



1. verðlaun, Gabríela Birta Kristjönudóttir, 12 ára frá Hveragerði

2. verðlaun, Katrín Jörundardóttir, 9 ára frá Reykjavík

3. verðlaun, Arnmundur Sighvatsson, 7 ára frá Reykjavík