Laugardaginn 16. maí halda skólahljómsveitir Reykjavíkur uppskeruhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Lúðraómur mun fylla Laugardalinn þegar litríkar sveitirnar hefja leik en í þeim eru um 600 ungir hljóðfæraleikarar.
Hljómsveitirnar sem munu leika fyrir gesti í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum eru Skólahljómsveit Árbæjar- og Breiðholts, Skólahljómsveit Grafarvogs, Skólahljómsveit Austurbæjar og Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.
Allar þessar hljómsveitir hafa á að skipa þremur aldursskiptum hljómsveitum A, B og C. Það verða því 12 sveitir sem munu spila á tveimur sviðum og marsera um garðinn frá kl.11.00 - 15.00.
A - sveitir munu spila kl.11.00 - 12.00. B - sveitir leika kl.14.00- 15.00 og C- sveitir munu marsera um garðinn frá kl.12.30.