Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík

Umhverfi Skipulagsmál

""

Í undirbúningi er sýning og málstofur í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 13. - 14. nóvember um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Þessa tvo daga verður Ráðhúsinu breytt í suðupott upplýsingamiðlunar og umræðu um stöðu og horfur í húsnæðismálum. 

Á sýningu sem sett verður upp í Tjarnarsal Ráðhússins kynna fagaðilar á byggingarmarkaði framboð sitt á nýju íbúðarhúsnæði og nýjum lausnum.

Fjölbreytt húsnæði og öflugur leigumarkaður

Auk sýningarinnar verða haldnar málstofur báða dagana þar sem kynnt verða ýmis verkefni sem eru þegar í framkvæmd eða á döfinni.  Einnig verður fjallað um hugmyndir og tækifæri til þess að auka fjölbreytni í framboði íbúðarhúsnæðis og hvernig megi byggja á hagkvæmari hátt og efla leigumarkað. Sérfræðingar munu fjalla um stöðu og horfur á húsnæðismarkaði frá ólíkum sjónarhornum. Málstofum líkur með opnum umræðum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun taka virkan þátt í kynningum og umræðum. 

Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar heldur utan um skipulagningu sýningar og málstofa. Áhugasamir geta sent fyrirspurnir á netfangið sea@reykjavik.is.