Nýherji styrkir unga reykvíska grunnskólanemendur, sem eru innflytjendur á Íslandi, til að sækja Háskóla unga fólksins þeim að kostnaðarlausu nú í sumar. Háskóli Íslands leitaði eftir samráði við Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða við að finna þessa nemendur og bjóða þeim námið.
Kennsluráðgjafar á sex Þjónustumiðstöðum Reykjavíkurborgar fundu þátttakendur úr hverju hverfi í samstarfi við grunnskólana. Þeir eru allir tvítyngdir en skilja vel íslensku og hafa staðið sig vel í námi.
Átján ungir Íslendingar af erlendum uppruna sækja þessa dagana Háskóla unga fólksins og er mikil og almenn ánægja í hópnum. Flestir nefndu efnafræði sem eftirlætisfag og eins fannst þeim þetta frábært tækifæri til að kynnast jafnöldrum sínum hvaðanæva að úr borginni og nágrenni.
Háskóli unga fólksins er fyrir grunnskólanemendur í 6. - 10. bekk. Boðið er upp á fjölmörg námskeið og sérhver nemandi setur saman sína eigin stundatöflu og getur því valið sér námskeið eftir áhugasviði.
Háskóli unga fólksins stendur yfir frá 10. - 13. júní. Skólanum lýkur með hátíð og vísindagleði og þá er foreldrum, forráðamönnum og systkinum boðið með.