Unglingalýðræði, málörvun og hestamennska í sérkennslu

Skóli og frístund

""

Fréttabréf skóla- og frístundasviðs vorið 2015 er komið út. Í því er m.a. fjallað um hvernig kórsöngur örvar málþroska hjá leikskólabörnum, unglingalýðræði og hestamennsku í sérkennslu. 

Fréttabréf SFS kemur út einu sinni á önn og er dreift til foreldrasamfélagsins og starfsfólks sviðsins. Þar er fjallað um ýmsa þætti fagstarfsins í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum borgarinnar, s.s. stefnumarkandi verkefni, niðurstöður kannana og þróunarstarf. 

Sjá fréttabréf vorsins 2015.