Fjölgun hefur orðið í hópi villtu dýranna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal.
Simlan Regína bar myndarlegum hreinkálfi laugardaginn 30. maí en það var í fyrsta skipti í sjö ár sem hreinkálfur lítur dagsins ljós í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Síðasti burður í hreindýrahópi garðsins var þegar móðirin Regína kom í heiminn. Faðirinn er tarfurinn Tindur sem var fluttur í garðinn af Fljótsdalsheiði fyrir tveimur árum. Simlur ganga með kálfana í um það bil 7 mánuði og eignast vanalega einn kálf. Kálfurinn sem er simla braggast vel og fylgir móður sinni hvert fótmál þegar hún er ekki að hvíla sig í háu grasinu.
Horn hreindýra lýsa valdastöðu þeirra innan hópsins og er almennt talið að það dýr sem skarti stærstu hornunum hafi mestu völdin. Tarfarnir missa völdin strax að loknum fengitíma þegar þeir fella hornin um mánaðarmót október - nóvember. Ungir tarfar og geldar simlur fella hornin í mars en kelfdar simlur venjulega að loknum burði.
Regína náði að koma starfsfólki garðsins töluvert á óvart því hún hafði fellt hornin sín fyrir tveimur mánuðum síðan og því var talið að hún væri geld. Hvað veldur er ekki vitað en ef til vill er ástæðan sú að baráttan um svæði og fæði er ekki eins mikil í litlu hjörðinni í Laugardalnum og í hjörðunum fyrir austan.
Fjölgun hefur einnig orðið í selalaug garðsins en urturnar Esja og Særún hafa báðar kæpt kópum. Kóparnir komu í heiminn í byrjun júní og eru sprækir. Faðirinn er brimillinn Snorri sem lætur lítið fyrir sér fara þegar kemur að uppeldinu en urturnar taka það hlutverk mjög alvarlega fyrstu vikurnar. Kóparnir eru á spena fyrstu fjórar til sex vikur ævinnar en að þeim loknum bítur urtan þá af sér og lætur þá um að finna sér sjálfir fæðu. Þeim getur reynst það erfitt fyrst um sinn og það er ekki fyrr en þeir eru orðnir um tveggja mánaða að þeir fara að taka fisk.
Starfsfólk garðsins vill koma því á framfæri til gesta sinna að sýna íbúum garðsins og ekki síst þeim yngstu fyllstu tillitssemi. Opið er alla daga frá kl. 10 til 18 að undanskildum 19. júní þegar lokað verður kl. 13 vegna 100 ára kosningarafmælis kvenna.