Tveir tvítyngdir farkennarar verða ráðnir til að styðja við nemendur með annað móðurmál en íslensku í reykvískum grunnskólum. Það er liður í tilraunaverkefni til tveggja ára sem miðar að því að styrkja námsstöðu þeirra nemenda sem ekki hafa náð fullum tökum á íslensku.
Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögur starfshóps um þetta tilraunaverkefni sem fer af stað næsta haust. Hlutverk kennaranna verður annars vegar að kenna móðurmál nemendanna og hins vegar að vinna sem tvítyngdir fagkennarar.
Í greinargerð með tillögum starfshópsins segir m.a.;
Fjölmenningarlegt samfélag er orðið að veruleika í Reykjavík og á landinu öllu. Innflytjendum fjölgaði verulega á árunum fyrir hrun og er nú svo komið að hlutfall grunnskólanemenda í borginni með annað móðurmál en íslensku er rúmlega 10%. Hlutfall leikskólabarna sem eiga annað eða báða foreldra af erlendum uppruna er tæp 19% eða 1.325 börn. Þar af eru í kringum 1.000 börn sem eiga báða foreldra með annað móðurmál en íslensku.
Einnig segir í greinargerðinni að mikil tækifæri felist í því fyrir Reykjavíkurborg að standa vel að menntun tví- og fjöltyngdra barna og gera þannig betur en víða hefur orðið raunin í öðrum löndum, en tíminn til þess sé naumur. Vitnað er til helstu sérfræðingar í þessum málefnum þ.á m. Birnu Arnbjörnsdóttur, prófessors í annarsmálsfræðum við HÍ, sem telur virkt tvítyngi mikilvæga undirstöðu náms í íslensku og jafnframt góðs námsárangurs, jákvæðrar sjálfsmyndar og virkrar þátttöku í samfélaginu. Úrræðaleysi geti hins vegar leitt af sér svokallað neikvætt tvítyngi þar sem nemandinn hefur við lok grunnskóla hvorki nægilegt vald á íslensku né móðurmáli sínu sem geti útilokað hann frá frekari menntun og dregið úr möguleikum hans í samfélaginu.
Í samstarfssáttmála meirihluta borgarstjórnar er tilgreint að Reykjavíkurborg hrindi í framkvæmd áætlun um að efla móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna. Sett verði á fót þróunarverkefni þar sem boðin verði móðurmálskennsla í grunnskólum borgarinnar.
Sjá skýrslu starfshópsins sem starfað hefur frá því í ágúst 2014.