Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir var ráðin skólastjóri í Fellaskóla og Sæunn Elfa Pedersen Karlsdóttir leikskólastjóri við Fífuborg á fundi skóla- og frístundaráðs 3. júní.
Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir var ráðin skólastjóri í Fellaskóla á fundi skóla- og frístundaráðs 3. júní. Sigurlaug lauk BA- prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ árið 1997, MA- prófi með fjölmenningarlegum áherslum frá sama skóla árið 2000 og lauk nú í vor M.Ed-gráðu í stjórnunarfræði menntastofnana. Hún býr yfir langri stjórnunarreynslu og hefur m.a. verið deildarstjóri nýbúa- og sérkennslu í Fellaskóla og starfað sem aðstoðarskólastjóri og skólastjóri.
Fjórir sóttu um skólastjórastöðuna í Fellaskóla en einn dró umsókn sína til baka. Umsóknarfrestur rann út 17. maí.
Sæunn Elfa stýrir Fífuborg
Sæunn Elfa Pedersen Karlsdóttir var ráðin leikskólastjóri við Fífuborg. Sæunn lauk leikskólakennaraprófi frá Fóstruskóla Íslands 1977 og hefur að auki diplómu í uppeldis- og menntunarfræðum. Hún hefur langa stjórnunarreynslu og hefur starfað sem leikskólakennari, aðstoðarstjórnandi í leikskóla og leikskólastjóri.
Fimm sóttu um leikskólastjórastöðuna í Fífuborg en umsóknarfrestur rann út 10. maí.