Tölvu- og símakerfi borgarinnar hefur legið niðri frá því klukkan 8:30 í morgun. Ástæða bilunarinnar var að ljósleiðari fór í sundur.
Viðgerð á ljósleiðara er nú lokið og tölvu- og símkerfi borgarinnar komið í lag. Við þökkum biðlundina og biðjumst velvirðingar á óþægindum sem bilunin kann að hafa valdið. Nú er hægt að hafa samband við Reykjavíkurborg og fá þjónustu og heimasíður eru komnar í samt lag.