Tólf hafrar og ein huðna

Umhverfi Skóli og frístund

""

Geitburði er lokið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og alls komu 13 kiðlingar í heiminn undan 9 huðnum.  

Hafurinn Djákni er faðir allra kiðlinganna og virðist lítið kippa sér upp við nýorðið ríkidæmi sitt og lætur huðnunum eftir uppeldið.  Fram að geitburði var aðeins einn hafur í fjárhúsinu í garðinum en nú er þar karlpeningurinn í meirihluta þar sem í kiðlingahópnum eru 12 hafrar en aðeins ein huðna. 

Kiðlingarnir og huðnurnar fengu nýlega heimsókn frá fróðleiksfúsum nemendum í leikskólunum Heiðarborg og Rauðhól.  Ekki var annað að sjá en að bæði krakkarnir og kiðlingarnir hefðu mikið gaman af samverunni.  

Nú þegar geitburði er lokið tekur við bið eftir sauðburði en búast má við að hann hefjist í byrjun maí. Í garðinum eru 8 lembdar ær og faðirinn er hrúturinn Grámann.