Dagana 8. - 10. maí er haldin evrópsk hreinsunarvika þar sem markmiðið er að fegra ásýnd borgarinnar með því að taka til í hverfinu sínu og finna leiðir til að draga úr sóun með breyttum venjum. Borgarbúar eru hvattir til að tína upp rusl eins og nokkrar hressar konur gerðu fyrr í vikunni.
Nokkrar skeleggar konur fóru í göngutúr um Hlíðahverfið í vikunni og tíndu upp rusl sem á vegi þeirra varð. Konurnar sem um ræðir eru þær Helga Guðrún Johnson, Katrín Ingvadóttir og Anna Katrín Guðmundsdóttir en þær fara í gönguferðir um hverfi höfuðborgarsvæðisins í viku hverri. Í tilefni af átakinu var ákveðið að hópurinn myndi taka með sér plastpoka í gönguna og hirða upp rusl í hverfinu.
Borgin er að koma undan vetri og víða má sjá rusl upp við girðingar, í trjám og á gangstéttum. Á einni klukkustund tíndu þær í þrjá poka og var af nógu að taka. Frumkvæði þeirra er til mikils sóma og ættu fleiri að gera slíkt hið sama, það er að hittast, taka göngutúr og hirða upp rusl í leiðinni. Allir íbúar eiga borgina og það er á ábyrgð þeirra og borgaryfirvalda að Reykjavík líti vel út. Tökum höndum saman því margar hendur vinna létt verk.
Um helgina er kjörið tækifæri fyrir íbúa, húsfélög, íbúasamtök og heilu göturnar til að fegra umhverfi sitt fyrir sumarið með því að safna rusli í svarta plastpoka. Starfsfólk Reykjavíkurborgar mun svo fara um hverfin mánudaginn 11. maí og tína pokana upp. Hér er ekki átt við garðaúrgang eða stærri hluti því fólk fer sjálft með hann á endurvinnslustöðvar SORPU bs. eða endurnýtir í garðinum til dæmis við moltugerð.