Þrjár milljónir til 32 verkefna úr Menningarnæturpotti

Mannlíf Menning og listir

""

Þremur milljónum króna var í gær veitt úr Menningarnæturpotti Landsbankans til 32 verkefna og viðburða sem fram fara á Menningarnótt. Menningarnæturpottur er samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi. Allur fjárstuðningur Landsbankans rennur beint til listamanna og hópa sem koma fram á hátíðinni.

Þetta er í sjötta sinn sem styrkir eru veittir úr Menningarnæturpottinum. Í ár bárust vel yfir hundrað umsóknir og valdi starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu styrkþegana. Við úthlutun var kastljósinu meðal annars beint að viðburðum á torgum miðborgarinnar; nýjum og gömlum, stórum og litlum, fundnum og földum. Landsbankinn mun til viðbótar við þessa styrki standa fyrir sinni árvissu menningardagskrá í útibúi sínu í Austurstræti.

Nánar um Menningarnótt

Menningarnótt verður haldin í tuttugasta sinn laugardaginn 22. ágúst. Viðburðir af öllum toga verða á torgum og götum, í húsasundum og görðum, í galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum og munu fylla miðborgina lífi. Yfirskrift Menningarnætur er Gakktu í bæinn og vísar til þeirrar gömlu íslensku venju að bjóða gesti velkomna og gera vel við þá. Í lok Menningarnætur verður að vanda vegleg flugeldasýning sem fengið hefur nafnið Stjörnubrim – himininn kristallast.

Höfuðborgarstofa sér um skipulagningu Menningarnætur en samstarfsaðilar eru Landsbankinn og Vodafone.

 

Menningarnæturpottur 2015 – styrkþegar

Styrkir að upphæð 200.000 kr.

• Leikhúsið Ethos – Uppsetning á sviðslistaverki sem gefur jaðarlistafólki tækifæri til að láta í sér heyra undir leiðsögn Ilmar Kristjánsdóttur leikkonu og Rúnars Guðbrandssonar leikstjóra.

• Sigþór Hallbjörnsson – Rokktónleikarnir „Rokk og ról og mótorhjól“ til minningar um mótorhjólafólk sem fallið hefur frá.

Styrkir að upphæð 150.000 kr.

• Blúsáhugamenn – Blúshátíð á Grandagarði með þátttöku fjölda tónlistarmanna.

• Elvar Ingi Helgason – Reggílistahátíðin „Ein ást“ en þema hátíðarinnar er að ýta undir virðingu gagnvart náunganum og fordómalaust viðhorf með söng og swingi.

• Festisvall Fünf – Myndlistarhátíð í Vitagarði í óhefðbundnum rýmum innan og utandyra.

• Hljómsveitin Eva og táknmálstúlkahópurinn Hraðar hendur – Tónleikar í tali og tónum sem verða túlkaðir samtímis á táknmáli.

• JCI – Blindir sjá. Ljósmyndasýning og ljósmyndakeppni með völdum myndum frá blindum og sjónskertum.

Styrkir að upphæð 100.000 kr.

• Bókmenntaborg UNESCO – Verkefnið „Ljósberar og Ós“.

• Brynja Péturs – Street Dance Festival, fríir danstímar í fjölbreyttum street-dansstílum.

• Guðrún Árný Karlsdóttir – Tónleikar í Dómkirkjunni með eigin lögum og lögum eftir Hilmar Karlsson.

• Hitt húsið – Tónleikar með ungum og efnilegum hljómsveitum frá Eistlandi, Frakklandi, Hollandi og vinningshljómsveit Músíktilrauna 2015, Rythmatik frá Íslandi.

• Improv Ísland – Spuna-maraþon með sextán spunasýningum í röð við undirleik Karls Olgeirssonar.

• Listasafn Íslands – Útibíó með sögustund á listatorgi Listasafnsins.

• Mengi – Frumflutningur á Menningarstundinni, nýjum gjörningi sem stendur yfir í allt að fjóra tíma þar sem talað verður til hjartans, en ekki heilans.

• Nemendur í Listaháskóla Íslands – Verkefnið „Listatækið ABBA“, skemmtilegur þátttökugjörningur, sem skjalfestir viðbrögð fólks við óvæntum aðstæðum.

• Projekt Polska – Tónleikar tríósins RGG með lögum af nýjustu plötu sinni Aura og hefur tríóið fengið í lið með sér jazztónlistamenn frá Póllandi.

• Stefán Ingvar Vigfússon – Torgið talar - ljúf kaffiblanda, hljóðlistaverk og þátttökuleikhús, á mörkum gjörningalistar og útvarpsleikhúss.

• Sönghópurinn Spectrum – Raddspuni þar sem áheyrendur verða baðaðir heillandi og framandi tónum í Tjarnarbíói.

Styrkir að upphæð 50.000 kr.

• Óperuakademía unga fólksins – Verkefnið „Alls konar ást“ á vegum Óperuakademíu unga fólksins.

• Samtök um danshús – Verkefnið „Amma dansar“ – opið hús í æfingasölum samtakanna.

• Bjarni Þór Kristjánsson – Verkefnið „Eldur í afli“ þar sem eldsmiðir af öllu landinu smíða fagra gripi.

• Sönghópurinn Gija – Tónleikar með litháískri tónlist frá ýmsum tímum.

• Guðný Rúnarsdóttir – Verkefnið „Hvaðan ertu?“ á Káratorgi þar sem gestum og gangandi er boðið að skreyta torgið.

• Haraldur Ægir Guðmundsson – Ljóðadjass – Bukowski til Íslands.

• Kammerhópurinn Umbra – Tónleikarnir Rökkrið yljar með þjóðlögum og endurreisnartónlist sem tengjast dekkri hliðum mannlegrar tilivistar.

• Listvinafélag Hallgrímskirkju – Sálmafoss – kórar og organistar flytja fjölbreytta kirkjutónlist eftir íslenskar skáldkonur og tónskáld.

• Fidget Feet og bíbí & blaka – Nýtt verk með blöndu af nýsirkús og samtímadansi undir stjórn Chantal MacCormick og Tinnu Grétarsdóttur.

• Tangófélag Reykjavíkur – Torgstemmning frá Buenos Aires eins og hún gerist best.

• Mandólín – Tangótónlist frá ýmsum heimshornum.

• Marta Magdalena Niebieszczanska og Justyna Grosel – Sýning á landlagsljósmyndum teknum í endurreisnarstíl með frumstæðri myndavél án linsu (camera obscura).

• Tónagull – Tónleikarnir „Vísnagull“ fyrir yngstu kynslóðina.

• Halldór Eldjárn og Þórður Hans Baldursson  – Innsetningin „Þjóðarsálin“ á Austurvelli.