Þrjár glæsilegar sýningar opnaðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, fimmtudaginn 21. maí kl. 17
Menning og listir
Þrjár glæsilegar sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, fimmtudaginn 21. maí kl. 17, Áfangar eftir bandaríska listamanninn Richard Serra, Athöfn og yfirskin eftir Magnús Sigurðarson og Bangsavættir eftir Kathy Clark.
Á sýningunni Áfangar í Hafnarhúsi eru 19 teikningar með olíukrít á pappír sem Richard Serra gerði í tengslum við umhverfisverk sitt Áfanga sem sett var upp í Viðey árið 1990. Auk þeirra eru 30 grafísk verk - ætingar og þrykk - frá 1991 sem eru í eigu Landsbanka Íslands. Á sýningunni eru einnig 3 vídeóverk eftir Svein M. Sveinsson (Plús film) sem er varpað samtímis á þrjá veggi í C-sal Hafnarhússins.
Áhersla er lögð á bein tengsl sýningarinnar við umhverfisverkið sjálft með reglulegum ferðum í Viðey. Boðið verður uppá leiðsagnir í Hafnarhúsi og í eyjunni á hverjum laugardegi frá júní – ágúst og 4 vikulöng námskeið um myndlist og náttúruskoðun fyrir börn og unglinga. Sýningin Áfangar er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Magnús Sigurðarson (f. 1966) heldur sína fyrstu einkasýningu hér á landi um langt skeið í Hafnarhúsinu sem ber heitir Athöfn og yfirskin en hann hefur verið búsettur í Miami í Bandaríkjunum í yfir áratug. Á sýningunni er m.a. myndbands- og hljóðinnsetning sem listamaðurinn vann nýlega í Hallgrímskirkju og landslagsteikningar. Magnús beinir sjónum sínum að nokkrum fastapunktum tilverunnar sem er að finna bæði í náttúru og menningu. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson en laugardaginn 23. maí kl. 15 er gestum boðið að koma og hlusta á hann ræða við listamanninn um sýninguna.
Bangsavættir nefnist sýning Kathyar Clark en uppistaðan í henni eru bangsar sem áður voru í eigu annarra. Um er að ræða þúsundir bangsa, sem listakonan hefur farið ómildum höndum um og umbreytt. Í eina tíð þjónuðu þessir mjúku og loðnu bangsar tilgangi sínum sem félagar barna. En eins og raunin er með flesta hluti, missa þeir að lokum notagildi sitt. En kannski búa þeir yfir orku frá fyrri eigendum sínum. Bangsavættir/bears; truths..., er fyrsta einkasýning Kathyar Clark í opinberri listastofnun í Reykjavík. Kathy er af bandarísku og asísku bergi brotin og ólst upp í úthverfi Chicagoborgar.