Þrettándahátíð Vesturbæjar
Föstudaginn 9. janúar var haldin Þrettándahátíð við Ægisíðuna í Vesturbænum. Ástæðan fyrir því að þetta var haldið 9. jan. er sú að fresta þurfti brennunni þann 6. janúar vegna veðurs. Þrátt fyrir að hafa þurft að færa þessa hátíð um nokkra daga var vel mætt og ekki að sjá á öðru en að fólk hafi skemmt sér vel.
Föstudaginn 9. janúar var haldin Þrettándahátíð við Ægisíðuna í Vesturbænum. Ástæðan fyrir því að þetta var haldið 9. jan. er sú að fresta þurfti brennunni þann 6. janúar vegna veðurs. Þrátt fyrir að hafa þurft að færa þessa hátíð um nokkra daga var vel mætt og ekki að sjá á öðru en að fólk hafi skemmt sér vel. Hátíðin var nokkuð hefðbundin, en það var byrjað við KR þar sem þeir Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall spiluðu undir fjöldasöng og svo haldið í skrúðgöngu að Ægisíðunni þar sem kveikt var í brennunni og glæsileg flugeldasýning var haldin í kjölfarið. Rauði kross Íslands var svo með kakó og kleinur til sölu á vægu verði. En takk allir sem komu og ekki síður þakklæti til þeirra sem aðstoðuðu með einum eða öðrum hætti
Foreldrafélög grunnskóla í Vesturbæ, Frostaskjól og Þjónustumiðstöð Vesturbæjar.