Thorvaldsenkonur gáfu Klettaskóla snertitöflur

Skóli og frístund

""

Thorvaldsenskonur komu færandi hendi í Klettaskóla á dögunum og færðu nemendum og starfsfólki svokallaðar snertitöflur sem þær höfðu safnað fyrir. 

Thorvaldsenfélagið gaf Klettaskóla tvær snertitöflur (Smart- töflur), sem keyptar voru fyrir söfnunarfé úr svokölluðum barnauppeldissjóði, ágóða af sölu jólamerkja á aðventunni 2014.

Snertitöflurnar eru hið mesta þarfaþing í skólastarfinu - í raun tæknibylting í kennslu fatlaðra barna. Starfsfólk Klettaskóla er Thorvaldsensfélaginu afar þakklátt fyrir gjöfina, frábært framtak og vinarhug.