Þorrasel flytur

Velferð

""

Þorrasel er dagdeild fyrir aldraða, sem stefnt er að flytji frá Þorragötu 3 að Vesturgötu 7 í Reykjavík.

Ekki stendur til að skerða á neinn hátt það mikilvæga starf sem nú fram fer í þorraseli þótt starfsemin flytjist um set.  Með því að flytja selið í stærra húsnæði er hægt að nýta dagdeildina betur og þjónusta fleiri aldraða, veita þeim stuðning til að búa heima og bjóða þeim þátttöku í félagsstarfi. 

Á Vesturgötu 7 er mötuneyti, setustofa, handavinnustofa, salur til líkamsþjálfunar, hvíldarherbergi og síðast en ekki síst skjólgóður garður með bekkjum þar sem hægt er að njóta útiveru.

Aldraðir sem sækja dagdvölina í Þorrasel eru úr öllum hverfum borgarinnar. Íbúar við Þorragötu 3 verða ekki fyrir neinni skerðingu á þjónustu sem heyrir undir húsið, þar sem eru íbúðir fyrir aldraða. 

Þess ber að lokum að geta að flutningurinn tengist ekki sameiningu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu í vesturhluta borgarinnar en það er sú starfssemi sem nú er lagt til að geti komið í húsnæðið að Þorragötu 3 í stað Þorrasels.