Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis flytur - lokað á föstudag

Velferð

""

Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis flytur föstudaginn 18. september frá Síðumúla 39 að Efstaleiti 1 (RUV-byggingin). Af þeim sökum verður þjónustumiðstöðin lokuð föstudaginn 18. september.

Opnað verður á nýjum stað, Efstaleiti 1, mánudaginn 21. september.  

Þegar þjónustumiðstöðvar borgarinnar voru settar á laggirnar árið 2005 var gert ráð fyrir að Síðumúli 39 yrði bráðabirgðahúsnæði fyrir Þjónustumiðstöðina, nú 10 árum síðar er loksins komið að flutningum í nýtt húsnæði.