Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis fær nýtt húsnæði fyrir starfsemi sína í Útvarpshúsinu að Efstaleiti 1. Borgarstjóri og útvarpsstjóri undirrituðu í dag leigusamning þessa efnis. Gert er ráð fyrir að þjónustumiðstöðin flytji inn í maí.
Reykjavíkurborg tekur um 2.600 fermetra á leigu, en það eru 4. og 5. hæð, auk hluta af 2. hæð þar sem aðalinngangur er. Þá er í leigusamningi gert ráð fyrir hlutdeild í mötuneyti og öðrum sameiginlegum svæðum og lóð, auk geymslurýmis á 1. hæð. Húsaleiga er 4,9 milljónir á mánuði og er samningurinn til 15 ára. Reykjavíkurborg mun gera breytingar á húsnæðinu til að mæta þörfum þjónustumiðstöðvarinnar.
„Það eru allir himinlifandi yfir þessum flutningum og nýtt húsnæði bætir vinnuastöðuna og mun gera alla þjónustu auðveldari,“ segir Sigtryggur Jónsson sem er nýtekinn við sem framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis. Á vegum miðstöðvarinnar starfa rúmlega 600 starfsmenn á um 40 starfsstöðvum í þessum hverfum.
Þjónustumiðstöðin er í dag í húsnæði við Síðumúla sem um margt er óhentugt fyrir starfsemi af þessu tagi og hefur leit að nýju húsnæði staðið yfir um nokkurt skeið.
„Við fögnum því að fá starfsfólk þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar sem sambýlinga í þetta góða hús,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri þegar skrifað hafði verið undir samninginn.