NÆS áskorunin gengur vel. Sorphirða Reykjavíkur og Þjónustumiðstöð borgarlandsins eru NÆS.
Þjónustumiðstöð borgarlandsins er næs. Þau lögðu töluvert upp úr myndinni, sýndu metnað umhverfis umferðarljós og skilti með hjörtum auk þess sem þau vildu sýna eitthvað af þeim búnaði sem unnið er með. Áhugasömum er ráðlagt að skoða myndina í smáatriðum hér:
Skoðið myndina hér í smáatriðum, greina má hjörtu hér og þar.
Sama má segja um sorphirðu Reykjavíkur en mannauðsdeild ráðhússins skoraði á sorphirðuna að vera næs sem skoraði á þjónustumiðstöð borgarlandsins að vera næs, sem skorar á skrifstofu framkvæmda og viðhalds næst, að vera NÆS.
Reykjavíkurborg heldur m.ö.o áfram að vera næs. Vertu næs áskorunin hvetur til samskipta við fólk af erlendum uppruna og leggur áherslu á að við komum fram við hvert annað af virðingu. Uppruni, litarhaft og trúarbrögð eiga ekki að skipta máli. Með samtakamætti er hægt að hafa mikil áhrif.
Innri vefurinn er góður vettvangur til að segja frá því sem gert er á ykkar vinnustað í átakinu sem og aðra daga ársins. Sendið okkur endilega myndir og frásagnir af fjölmenningu á ykkar vinnustað, frettir@reykjavik.is
Tenglar