Í Árbæjarskóla eru mánaðarlega haldnir svokallaðir þjóðfundir í samstarfi við Tíuna til að efla lýðræðislega þátttöku barnanna í skóla- og félagsmiðstöðvarstarfinu.
Þjóðfundirnir eru haldnir í Árbæjarskóla í samstarfi skólans og félagsmiðstöðvarinnar Tíunnar og eru þeir fyrir alla nemendur í unglingadeildinni. Fundarformið vísar til Þjóðfundarins sem haldinn var hér á landi 2010.
Í upphafi skólaárs var skipað sameiginlegt fulltrúaráð með þremur fulltrúum nemenda úr hverjum árgangi. Við það bættist síðan formaður úr 10. bekk. Allir gátu boðið sig fram til fulltrúaráðs og voru tekin upp myndskeið af frambjóðendum þar sem þeir kynntu sig. Að því loknu fengu allir kjörseðla í hendur og kusu fulltrúa sína, sem fengu m.a. það hlutverk að skipuleggja þjóðfundina.
Eitt af meginhlutverkum fulltrúaráðsins er að standa vörð um lýðræði ungs fólks í Árbæjarskóla, félagsmiðstöðinni og í raun í hverfinu öllu. Það gera fulltrúar með því að vera virkir talsmenn nemenda, vinna úr niðurstöðum þjóðfunda og koma þeim í framkvæmd.
Þjóðfundirnir ganga þannig fyrir sig að nemendum í hverjum árgangi er skipt niður í 10 hópa. Einn fulltrúi fer með hverjum hóp og ræðir fyrirfram ákveðnar spurningar sem tengjast skóla- og félagsmiðstöðvarstarfinu, hverfinu eða samfélagi unglinganna. Spurningarnar koma frá fulltrúaráðinu, starfsfólki og hverjum þeim sem sendir inn umræðuspurningar.
Líflegar umræður skapast iðulega á þessum fundum og margar hugmyndir hafa komið fram. Fulltrúaráðið hefur haldið kynningu fyrir nemendur á þeim hugmyndum og niðurstöðum sem komið hafa út úr fundunum og skólinn og félagsmiðstöðin hafa lagt sig fram við að hlusta á þær og koma í framkvæmd.
Kannski mest lýsandi dæmi um árangur þessara funda var þegar nemandi hafði á orði í foreldraviðtali þegar kennarinn spurði hann hvort það væri eitthvað sem hann vildi gagnrýna í skólastarfinu, en þá svaraði nemandinn að bragði: „Nei ekki neitt - fékk tækifæri til að segja allt sem ég vildi segja á þjóðfundinum“.