Áhugavert þróunarverkefni í sérkennslu fór af stað í Kelduskóla haustið 2012 sem miðar að því að efla sjálfstraust og sjálfsmynd nemenda með því að kenna þeim að umgangast hesta af öryggi og óttaleysi.
Verkefnið, sem Herdís K. Brynjólfsdóttir sérkennari leiðir, hefur fengið styrk úr sprotasjóði menntamálaráðuneytisins og hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs.
Herdís segir að þetta sé leiðtoga- og samskiptanámskeið fyrir börn á aldrinum 10 - 13 ára. „Börnin fá verkefni sem þau leysa með aðstoð hestanna, verkefni sem styrkja samskipta- og félagsfærni þeirra og bæta framkomu þeirra. Þeim er kennt að bera ábyrgð á gerðum sínum og taka tillit til annarra. Jafnframt er mikilvægt að þau finni fyrir vellíðan með hestinum úti í íslenskri náttúru og læri að bera virðingu fyrir umhverfinu, sjálfum sér og öðrum; að þykja vænt um lífið. Svo fylgir hestamennskunni oftast andleg uppörvun og upplyfting.“
Herdís segir að verkefnið hafi skilað mælanlegum árangri með betri líðan og þar með betri árangri í námi. Einnig séu foreldrar ánægðir með árangurinn eins og ummæli þeirra bera með sér:
„Það er eitthvað sem breytist hjá syni mínum þegar hann er í hestunum. Hann hlakkar til og finnur styrk sinn - sérstaklega núna þegar hann er að aðstoða yngri nemendur. Hann verður bara svakalega ánægður með sig og gaman að sjá hann blómstra. Mesti munurinn er sá að hann kemur uppveðraður heim úr skólanum í staðinn fyrir að vera hundþreyttur og dapur.“