Mælingar á hlutfalli nagladekkja á götum borgarinnar eru gerðar árlega í nóvember og reyndist það vera tæplega 30% að þessu sinni.
Hlutfall negldra hjólbarða í Reykavík var mælt 11. nóvember og reyndust 29,4% ökutækja vera á negldum dekkjum og 70,6% á öðrum dekkjum.
Á sama tíma í fyrra reyndist hlutfall ökutækja á negldum dekkjum 25,4%, fyrir tveimur árum var hlutfallið 28,5% og fyrir þremur árum var hlutfallið 26,5%. Hlutfall negldra dekkja í nóvember undanfarin ár hefur því verið á bilinu 25-29%.
Hér er tafla yfir mælingar 2012-2015 í nóvember ásamt veðurlýsingu:
| Mán | Ár | Hlutfall negldra | Veðuryfirlit |
| Nóv | 2015 | 29,4% | Fyrsti snjór og hálka kom í lok október (25.10.2015) á götum borgarinnar en hlýnaði svo fljótt aftur. Frost og kuldi með tilheyrandi hálku kom annað slagið, sérstaklega á kvöldin og á nóttunni í nóvember en ekki mikill snjór. Við talningu var milt veður um 2-5°C og rigning. |
| Nóv | 2014 | 25,4% | Snjóaði 21. október með mikilli hálku. Milt veður við talningu, um 8-9°C. |
| Nóv | 2013 | 28,5% | Snjókoma í byrjun nóvember, við tók rigning og hálka um miðjan mánuð, síðan aftur snjór. |
| Nóv | 2012 | 26,5% | Enginn snjór en nokkrir hálkudagar í byrjun nóvember. |
Reykjavíkurborg hefur undanfarin ár hvatt borgarbúa til að velja fremur góð vetrardekk heldur en nagladekk sem spæna upp malbik og geta valdið því að börn og fólk með viðkvæm öndunarfæri þurfi að forðast útiveru.
Svifryk (PM10) hefur farið níu sinnum yfir heilsuverndarmörk á þessu ári við mælistöðina á Grensásvegi, en svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Það fór síðast yfir 18. nóvember.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi.