Sýning japanskra samtímalistamanna í Ráðhúsinu

Menning og listir

""

Farandsýningin, " Sharaku Interpreted – By Japan‘s contemporary artists,"  hefur verið opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin er byggð á verkum japanska listamannsins Toshusai Sharaku, sem var uppi á 18. öld. 

Sharaku er þekktur fyrir portrettmyndir sínar af hefðbundnum japönskum leikhúsleikurum.  Þó lítið sé vitað um persónulega sögu Sharaku og bakgrunn verka hans, hafa þau hlotið heimsathygli og haft áhrif á listamenn í Japan og víðar.

Sýningin samanstendur af veggspjöldum, málverkum og þrívíðum verkum eftir nútíma listamenn, þar sem þeir túlka á sinn frjálslega hátt þennan fremsta meistara svokallaðra Ukiyo-e prentverka, sem er tréblokkaprent.

Sýningin er þrískipt:

"Eftirgerð af Sharaku", "Sharaku í grafíklist", og "Virðingarvottur við Sharaku."

Sýningin er á vegum japanska sendiráðsins og stendur til 2. nóvember næstkomandi. Á sýningunni gefst einstakt tækifæri til að kynna sér japanska list og menningu.

Athugið frítt inn á sýninguna.

Opnunartímar:

Mánudaga-föstudaga 08:00-19:00  

Laugardaga og sunnudaga 12:00-18:00