Borgaryfirvöld hafa ákveðið að Grensásvegi verði breytt í samræmi við samþykktir umhverfis- og skipulagsráðs. Í því felst að götunni verður breytt í svokallaða borgargötu í samræmi við Aðalskipulag 2010 - 2030. Breytingarnar voru samþykktar í borgarráði í gær.
Grensásvegur hefur verið endurhannaður frá Miklubraut að Bústaðavegi. Breytingarnar voru m.a. kynntar á fjölmennum íbúafundi sem haldinn var í Breiðagerðisskóla 12. mars sl. Þar kom m.a. fram að íbúasamtök í hverfinu eru fylgjandi breytingunum en þau vilja að hægt verði á umferð um götuna.
Eftir breytingar verða aðeins tvær akreinar á Grensásvegi, eða ein akrein í hvora átt. Hvor akrein verður 4,5 metrar. Í stað akreina sem hverfa verður gerður 2,4 metra breiður hjólastígur beggja vegna til hliðar við gangstéttir sem verða að minnsta kosti tveggja metra breiðar en núverandi gangstéttir eru afar mjóar og geta gangandi vegfarendur vart mæst á þeim. Nokkur hæðarmunur verður á milli hjóla- og göngustíga.
Umferðarljós sem eru á gatnamótum við Hæðargarð verða þar áfram og einnig gangbrautarljós við Breiðagerði en stjórnbúnaður þeirra verður endurnýjaður.
Ný gangbrautarljós verða sett norðan við Heiðargerði í stað hraðahindrunar á gönguþverun sem áður var áætluð.
Biðstöðvar strætó eru á þremur stöðum, þ.e. þrjár hvoru megin götunnar. Gert er ráð fyrir að biðstöð strætó rjúfi hjólastíginn þannig að strætó leggi að gangstétt. Þetta er gert með tilliti til aksturs neyðarbíla en hætta er talinn á of mikilli töf þeirra ef vagn stoppar í götunni. Það fyrirkomulag má endurskoða þegar bráðamóttaka flyst frá Borgarspítala í Landspítala við Hringbraut.
Sex til sjö cm hæðarmunur verður á milli götu og hjólastígs þannig að almenn umferð geti auðveldlega vikið upp á hjólastíginn ef neyðarbíll er á ferð.
Götulýsing verður endurnýjuð. Núverandi staurar í gangstétt verða fjarlægðir og nýjum staurum komið fyrir í miðeyjunni.
Framhjáakstur á umferðarljósum við gatnamót Grensásvegar og Bústaðavegar verður aflagður.
Gróður verður í miðeyjunni. Gætt verður að því að hann byrgi ekki sýn fyrir akandi, hjólandi eða gangandi.
Framkvæmdir hefjast í sumar að afloknu útboði á verkinu.