Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag í nágrenni við miklar umferðargötur. Í dag er hægur vindur og kalt, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Á morgun er búist við svipuðum veðurfarsaðstæðum.
Klukkan 15:00 var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 135 míkrógrömm á rúmmetra og 100 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bólstaðarhlíð. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi.
Farstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til að mæla loftgæði eru nú við Bólstaðarhlíð og Holtaveg.