Sundlaugar og menningarstofnanir loka kl. 16:30

Íþróttir og útivist Menning og listir

""
Allar sundlaugar í Reykjavík og menningarstofnanir borgarinnar svo sem Borgarbókasafn munu loka kl. 16:30 vegna óveðursspár.
Allar sundlaugar og menningarstofnanir Reykjavíkurborgar munu loka kl. 16:30 í dag vegna óveðursins sem spáð er á höfuðborgarsvæðinu seinnipartinn og í kvöld. Þetta á við um Borgarbókasafn – menningarhús, Borgarsögusafn Reykjavíkur ( Árbæjarsafn, Landnámssýninguna, Ljósmyndasafn og Sjóminjasafn) og Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn, Hafnarhús og Kjarvalsstaði. Ylströndin er einnig lokuð.
 
Höfuðborgarstofa mun halda upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti opinni til kl. 17.00 og hefur stillt saman strengi með Samtökum ferðaþjónustunnar og Landsbjörgu um upplýsingamiðlun til erlendra ferðamanna í borginni.
 
Þá hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) sent út tilkynningu um að allar íþróttaæfingar falli niður frá og með kl. 15.00 í dag.
 
Foreldrar hafa verið beðnir um að sækja börn sín í skóla og frístundaheimili fyrir kl. 16:00 í dag.