Sumargötur opna um miðjan maí

Umhverfi Mannlíf

""

Skoðanakannanir sýna að mikil ánægja hefur verið með svokallaðar sumargötur í miðborginni á undanförnum árum. Þær verða opnaðar eftir hálfan mánuð á Laugavegi, Skólavörðustíg og Pósthússtræti. Borgarráð fjallaði um málið á fundi sínum í morgun.

Göngugötur í miðborg Reykjavíkur verða opnaðar frá 15. maí til 15. september ef breytingatillaga borgarráðsfulltrúa meirihluta Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri Grænna verður samþykkt. Málinu var frestað en verður aftur á dagskrá borgarráðs í næstu viku.

Fyrirliggjandi tillaga umhverfis- og skipulagsráðs gekk út á að sumargötur yrðu í miðborginni frá 1. maí til 1.október. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina höfðu greitt atkvæði gegn þeirri tillögu og í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins var gagnrýnt að opnunartími sumargatna væri lengdur svo mikið, en þeir töldu að þriggja mánaða opnun væri fullnægjandi.

Meirihluti borgarráðs sagði í breytingartillögu sinni að með því að stytta tímabilið í báða enda væri bæði veittur meiri tími til undirbúnings auk þess sem komið væri til móts við mismunandi sjónarmið um lengd opnunar sumargatna.

Líkt og undanfarin ár er ráðgert að götuköflum, Laugavegur frá Vatnsstíg og Skólavörðustígur frá Bergstaðastræti, verði breytt í sumargötur auk þess sem Pósthússtræti verður lokað frá Kirkjustræti.

Göturnar eru þó opnar fyrir bílaumferð á morgnana frá kl. 8 - 11 frá mánudegi til föstudags svo þjónustu- og rekstraraðilar eigi auðvelt með aðföng og flutninga. Blómakerjum, bekkjum eða öðrum götugögnum verður komið fyrir á bílastæðum á svæðinu en eitt bílastæði á hverjum götukafla verður laust fyrir vöruafgreiðslu.

Séð verður fyrir bílastæðum fyrir hreyfihamlaða eins og verið hefur undanfarið ár.

Mikil ánægja hefur verið með sumargötur meðal borgarbúa og rekstraraðila við þær samkvæmt skoðanakönnunum sem Capacent hefur gert fyrir umhverfis- og skipulagssvið. Í nýlegri þjónustukönnun voru 76% borgarbúa jákvæðir gagnvart sumargötum í miðborginni.