Sumarblóm í Laugardalnum

Mannlíf

""

Sunnudaginn 12. júlí klukkan 11.00 mun Grasagarður Reykjavíkur standa að fræðslu um notkun einærra sumarblóma í görðum. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir.

Sunnudaginn 12. júlí mun Grasagarður Reykjavíkur standa að fræðslu um notkun einærra sumarblóma í görðum. Sumarblóm eru allstór og fjölbreyttur hópur garðplantna sem sáð er til snemma vors og forræktaðar í gróðurhúsi þar til þær eru gróðursettar úti. Flest sumarblóm blómgast stærstan hluta sumars og deyja næsta vetur.

Svanhildur Björk Sigfúsdóttir garðyrkjufræðingur hjá Grasagarðinum mun leiða gönguna og verða gróðursetningar í beð, ker og potta skoðaðar í Grasagarðinum og skrúðgarði Reykjavíkur í Laugardal.

Fræðslugangan hefst við aðalinngang Grasagarðsins klukkan 11.00.  Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir.