Styrkur svifryks líklega yfir mörkum í dag

Umhverfi

""

Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 2. júní. 

Töluverður vindur er í dag, 2. júní, þurrar götur og engar líkur á úrkomu. Á morgun, 3. júni, er áfram búist við þurrviðri og nokkrum vindi sem getur þyrlað upp ryki, sérstaklega við miklar umferðargötur.

Klukkan 14.30 í dag var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 147 míkrógrömm á rúmmetra og 735 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bíldshöfða 2. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Allir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna. Sú ráðlegging gildir einnig um börn.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á og annarra mengandi efna á slóðinni www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Öskju við Nauthólsveg 87 og í Ártúnsbrekku við Bíldshöfða 2.