Styrkir mannréttindaráðs - ert þú með spennandi hugmynd ?

Mannréttindi

""

Markmiðið með styrkveitingum er að styðja við hvers kyns sjálfsprottið starf, félagasamtök og framtak einstaklinga á sviði mannréttinda og stuðla að farsælli framþróun í borgarsamfélaginu, jafnræði borgarbúa og fjölbreyttu mannlífi. Að sama skapi að styðja við hvers konar starf sem vekur athygli á eða stendur vörð um grundavallarréttindi borgarbúa.

Hvernig er sótt um?

Umsóknir um styrki fara fram á Rafrænni Reykjavík.

Leiðbeiningar fyrir einstaklinga:

Hafi umsækjandi ekki áður skráð sig á Rafrænni Reykjavík þarf að stofna nýjan aðgang með kennitölu viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis og fá lykilorð sent í heimabanka umsækjanda. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“. Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana á Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.

Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki/félagasamtök:

Umsókn um aðgang að fyrirtækjagátt. Þar þarf að skrá fyrirtækið og fá aðgang að Rafrænni Reykjavík. Þegar aðgangsorð hefur verið sent í heimabanka fyrirtækisins er hægt að skrá sig inn á forsíðu Rafrænnar Reykjavíkur. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“.

Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana á Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Fyrirspurnir má senda á netfangið mannrettindi@reykjavik.is.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2015.

Fyrirspurnir og nánari upplýsingar má senda á netfangið mannrettindi@reykjavik.is

Auglýsingin á pdf formi.

Reglur um styrki mannréttindaráðs