Stóri leikskóladagurinn í uppsiglingu

Skóli og frístund

""

Stóri leikskóladagurinn verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og í Tjarnarbíói föstudaginn 29. maí. 

Stóri leikskóladagurinn verður nú haldinn í sjöunda sinn með fjölbreyttri dagskrá. Mikill áhugi er meðal leikskólastarfsfólks fyrir þessari fagráðstefnu og hyggjast margir leikskólar nýta daginn til símenntunar. Á þriðja tug leikskóla munu kynna starfsemi sína og sérstök þróunarverkefni á sýningu sem sett verður upp í Tjarnarsal ráðhússins. Þá munu leikskólabörn koma fram og syngja og dansa. Gestasveitarfélag að þessu sinni er Akureyri og munu tveir leikskólar þaðan kynna læsisverkefni og útinám. Þá verður boðið upp á fyrirlestra í Tjarnarbíói. 

Fyrirlestrar í Tjarnarbíói

9:00 - 9:30

Þegar amma var ung

Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu SFS.



9:30 – 10:00

Út í mó, inn í skóg. Að tengja nám í læsi í Furuskógi við nám í náttúrufræði með aðferðum umhverfismenntunar

Sigrún Björg Ingþórsdóttir, leikskólastjóri.



11:00 – 11:30

Áhrif skráninga á fagmennsku í leikskólastarfi

Inga Aronsdóttir, M.Ed. í leikskólakennarafræðum.



11:30 – 12:00

Undirbúningur að læsisstefnu í leikskólum Akureyrar og nágrennis í anda lærdómssamfélagsins

Sesselja Sigurðardóttir, sérfræðingur við skóladeild Akureyrarbæjar.



13:00 – 13:30

Vísindaleikir barna: Frá hugmynd til stjarnfræði. Þróunarverkefni í leikskólanum Björtuhlíð 2004-2015

Anna María Aðalsteinsdóttir, Berglind Sigurðardóttir og Dýrleif Ingvadóttir, leikskólakennarar.



13:30 – 14:00

Leikskólalæsi og verkefnabók í leikskólanum Kiðagili

Inda Björk Gunnarsdóttir, leikskólastjóri.



15:00 – 15:30

Leiklist í leikskóla.

Anna Bára Sævarsdóttir, M.Ed. í leikskólakennarafræði.



15:30 – 16:00

Samstarf HEBA- leikskólanna um starf í anda Reggio Emilia

Bryndís Markúsdóttir, Valborg Guðlaugsdóttir,

Svala Ingvarsdóttir og Hrafnhildur Konný

Hákonardóttir, leikskólastjórar.

Sjá dagskrá Stóra leikskóladagsins.