Stórfundur unglinga í Ráðhúsi Reykjavíkur

Skóli og frístund

""
Miðvikudaginn 18. nóvember verður spjallað og spekúlerað um frístundastarf í Ráðhúsi Reykjavíkur en þá koma 200 unglingar úr 8.-10 bekk saman til stórfundar undir handleiðslu starfsfólks úr frístundamiðstöðvum borgarinnar. 
Á stórfundinum verður leitað eftir hugmyndum unglinganna um frístundastarf á vegum borgarinnar. Starfshópur mun síðan nýta niðurstöður fundarins til stefnumótunar og skipulags frístundastarfsins með það að markmiði að efla það og bæta á forsendum ungs fólks.
 
Stórfundur unglinganna hefst  kl. 09:00 og mun standa til hádegis.  Fundargestir munu vinna saman í hópum og kynna hugmyndir sínar á fundinum.