Háleynileg frumsýning fór fram á stuttmyndunum úr Stelpur filma námskeiðinu um helgina. Um næstu helgi verða þær sýndar almenningi í Norræna húsinu.
Þær 11 myndir sem þátttakendur gerðu voru sýndar á frumsýningu í Háskólabíói og voru viðtökurnar mjög góðar. Myndirnar er hægt að flokka sem dramamyndir, hrollvekjur, gamanmyndir, grínmyndir og allt þar á milli. Sumar eru pólitískar með mikilvægan boðskap.
Sýningar fyrir almenning verða 3. og 4. október kl.13 í Norræna húsinu og eru þær sýningar hluti af kvikmyndahátíðinni RIFF sem fer nú fram í Reykjavík og Kópavogi.
Stuttmyndirnar sem til urðu á Stelpur filma! námskeiðinu eru:
1. Austurbæjarskóli - Lífið er stutt
2. Árbæjarskóli - Leiði
3. Breiðholtsskóli - Endurminningar
4. Hagaskóli - I´m gonna love you like I´m gonna lose you
5. Háaleitisskóli - Hringur óttans
6. Háteigsskóli - Dans á dópi
7. Hlíðarskóli - Brunabjallan
8. Hólabrekkuskóli - Með öðrum augum
9. Ingunnarskóli - Like á 80's
10. Laugalækjarskóli - Ég fer aldrei frá þér
11. Réttarholtsskóli - Rangur maður
Stelpur filma! var vikulangt námskeið sem haldið var vikuna 14. – 17. september og var á vegum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. Sextíu og átta 13-14 ára stelpur úr ellefu grunnskólum í Reykjavík komu saman í Norræna húsinu að læra kvikmyndagerð af þeim allra bestu í bransanum, s.s. Baltasar Kormáki, Íold uggadóttur, Margréti Örnólfsdóttur, Elísabetu Ronaldsdóttur og fleirum. Þá fengu þær jafnréttisfræðslu og tóku þátt í margs konar hópefli.
Stelpur filma! var haldið í fyrsta skipti í ár í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli kvenna á Íslandi en er hugsað til framtíðar.