Starfshættir í grunnskólum við upphaf 21. aldar

Skóli og frístund

""

Föstudaginn 6. febrúar kl. 14.000 verður efnt til ráðstefnu í Ingunnarskóla um rannsóknina Starfshættir í grunnskólum við upphaf 21. aldar sem er ein sú umfangsmesta sem gerð hefur verið hér á landi.

 

Rannsóknin Starfshættir í grunnskólum við upphaf 21. aldar er sú umfangsmesta á skólastarfi sem gerð hefur verið hér á landi. Þar draga á þriðja tug fræðimanna upp ítarlega mynd af viðhorfum til náms, námsumhverfi, skipulagi og stjórnun, kennsluháttum, hlut nemenda, tengslum skóla við foreldra og grenndarsamfélag, námi í list- og verkgreinum og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.

Niðurstöður þeirra leiddu m.a. í ljós að algengustu kennsluhættir voru bein kennsla í bekkjarstofu, sem var fylgt eftir með ýmiss konar einstaklingsverkefnum.Tölvubúnaður var takmarkaður sem og nýting upplýsingatækni í kennslustundum. Þá kom í ljós að þótt viðhorf nemenda til náms og kennslu, sem og samskipta innan skólans, væru almennt jákvæð þá voru áhrif þeirra á starfshætti lítil.

Tengsl skóla við foreldra fólust í foreldraviðtölum og rafrænum samskiptum fremur en virkri þátttöku foreldra í skólastarfi. Svonefndir teymiskennsluskólar skáru sig úr; þar var meiri einstaklingsmiðun í kennsluháttum en í öðrum skólum, samvinnunám algengara, þróunarstarf umfangsmeira og starfsánægja meiri.

Rannsóknin er hugsuð sem leiðarljós í þróunarstarfi fyrir kennara, stjórnendur og aðra stefnumótandi aðila, og ekki síður kennaranema og fræðimenn í menntavísindum.

Föstudaginn 6. febrúar kl. 14.000 verður efnt til ráðstefnu um rannsóknina í Ingunnarskóla í Reykjavík. Þar verður fjallað um helstu niðurstöður rannsóknarinnar, s.s. námsumhverfi á nýrri öld, foreldrasamstarf og upplýsingatækni í skólastarfi.

Dagskrá



Rannsóknin kynnt - Gerður G. Óskarsdóttir

Viðhorf eru til alls fyrst - Amalía Björnsdóttir

Skólabyggingar og námsumhverfi á nýrri öld - Anna Kristín Sigurðardóttir

Stuðningur skólastjóra við nám og kennslu - Börkur Hansen

Algengustu kennsluhættir og munur milli skóla og stiga - Ingvar Sigurgeirsson

Kaffihlé

Nám, áhrif og samskipti nemenda - Rúnar Sigþórsson

Foreldrasamstarf og tengsl við grenndarsamfélagið - Kristín Jónsdóttir

List- og verkgreinar - umfang, framkvæmd og viðhorf - Kristín Á Ólafsdóttir

Upplýsingatækni í skólastarfi - staða og þróun - Sólveig Jakobsdóttir

Pallborð með fyrirlesurum undir stjórn Ragnars Þorsteinssonar sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs. 

Þátttökugjald 1000 kr