Starfsdagur heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi var haldinn í Reykjavík í vikunni og var þemað að þessu sinni ferðaþjónusta og heilbrigðiseftirlit.
Um það bil sextíu heilbrigðisfulltrúar af tíu svæðum komu saman í Borgartúni hjá Heilbrigðiseftirlitir Reykjavíkur og ræddu meðal annars fjölgun gististaða, hávaðamengun, gæði neysluvatns, salernis- og fráveitumál í ljósi heilbrigðismála.
Heilbrigðiseftirlitin fara m.a. með hollustuhátta-, matvæla- og mengunarvarnareftirlit, stuðla að öflugri umhverfisvöktun og fræðslu til almennings. Heilbrigðisfulltrúar hafa það að leiðarljósi að búa landsmönnum heilnæm og örugg lífsskilyrði, vernda auðlindir og koma í veg fyrir mengun.