Enn eru tafir hjá sorphirðunni en það tekur dálítinn tíma að vinna upp þær tafir sem urðu fyrir jól og áramót. Sorphirðan vinnur á laugardögum og klukkutíma lengur á hverjum degi til að vinna upp tafirnar.
Staðan á sorphirðunni í dag:
Nú eru allir bílar að fara í Breiðholtið og það ætti að klárast á morgun. Þar var síðast hirt fyrir níu dögum en samkvæmt sorphirðudagatalinu hefði átt að hreinsa þar á miðvikudag.
Á morgun, laugardag, hefst sorphirða í Árbæ – Grafarholti og Norðlingaholti. Þessi hverfi ættu að klárast í síðasta lagi á mánudag en þá hefst sorphirða í Grafarvogi.