Spjaldtölvur auðga málumhverfið í leikskólanum Ösp

Skóli og frístund

""

Börnin í leikskólanum Ösp tala minnst tuttugu tungumál. Með spjaldtölvum geta þau hlustað á sögur og ævintýri á móðurmáli sínu og leikið og lært í gegnum hin ýmsu forrit. 

Foreldrar komu í leikskólann Ösp á föstudaginn var til að skoða nýjustu leikjatölvurnar og kynna sér möguleikana sem þær bjóða upp á í fagstarfinu. Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri segir að spjaldtölvurnar séu afbragðs kennslutæki, með þeim sé hægt að setja fram kennsluefni fyrir leikskólabörn á nýjan og ferskan hátt og búa til námsefni sem auðgi málumhverfi barnanna.

Í nýju tölvunum eru leikir sem breyta einfaldri teikningu í kvika mynd, fjölmargir leikir til að læra stafina, og myndskreyttar sögur á ýmsum tungumálum.  

Málrækt er lykilorð í starfi leikskólans Aspar og því hefur verið leitað nýrra leiða til að ná fram þeim markmiðum að börnin geti notið leiskólastarfsins á sínu móðurmáli. Þá er eitt af markmiðunum með innleiðingu spjaldtölva að efla og styðja kennarana í notkun snjalltækni, s.s. til að skrásetja fagstarfið og útbúa efni fyrir sérhvert barn.